Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Heilbrigðisráðuneytið
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Sóttvarnir
Undirritunardagur
12. janúar 2021
Útgáfudagur
12. janúar 2021
Leiðréttingar
13. janúar 2021
HTML-texti og PDF-skjal: Í upphafi 1. gr. í stað „2. málsl.“ komi: 3. málsl.
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 6/2021
12. janúar 2021
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1199/2020, um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.
1. gr.
2. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Börnum fæddum 2005 eða síðar er skylt að fara í sóttkví með foreldri eða forráðamanni.
2. gr.
2. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Börnum fæddum 2005 eða síðar er skylt að fara í sóttkví með foreldri eða forráðamanni.
3. gr.
Reglugerð þessi sem sett er á grundvelli 12., 13. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.
Reglugerð þessi fellur úr gildi þann 1. febrúar 2021.
Heilbrigðisráðuneytinu, 12. janúar 2021.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
Ásthildur Knútsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 12. janúar 2021