Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál

Undirritunardagur

2. febrúar 2022

Útgáfudagur

2. febrúar 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 142/2022

2. febrúar 2022

AUGLÝSING

um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga.

Vegna farsóttar af völdum COVID-19 hefur innviðaráðherra tekið svofellda ákvörðun, með vísan til 1. mgr. 131. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.

Til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga er öllum sveitarstjórnum heimilt að taka ákvarðanir sem fela í sér tímabundin frávik frá ákvæðum samþykkta þeirra um stjórn sveitarfélaga, sem mæla fyrir framkvæmd fjarfunda, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.

Sveitarstjórnum er heimilt að taka þessar ákvarðanir á fundi þar sem allir fundarmenn taka þátt í fundinum með rafrænum hætti.

Heimild þessi öðlast þegar gildi og gildir til 31. mars 2022.

Innviðaráðuneytinu, 2. febrúar 2022.

Sigurður Ingi Jóhannsson
innviðaráðherra.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 2. febrúar 2022

Tengd mál