Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
29. janúar 2024
Útgáfudagur
9. febrúar 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 9/2024
29. janúar 2024
AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/478 að því er varðar framlengingu á gildistíma verndarráðstafana varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 163/2024 um (1.) breytingu á reglugerð nr. 713/2022 um að viðhalda verndarráðstöfunum varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/360 frá 24. janúar 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/478 að því er varðar framlengingu á gildistíma verndarráðstafana varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Matvælaráðuneytinu, 29. janúar 2024.
Katrín Jakobsdóttir.
Emilía Madeleine Heenen.
C deild - Útgáfud.: 9. febrúar 2024