Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Reykjavíkurborg
Málaflokkur
Skipulagsmál, Reykjavík
Undirritunardagur
8. apríl 2026
Útgáfudagur
9. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 341/2026
8. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.
Kringlan – áfangi 1 – USK24060140.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, 6. nóvember 2025, tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir 1. áfanga uppbyggingar á Kringlusvæði á lóðunum Kringlan 1-3 og 5 fyrir allt að 418 íbúða byggð í bland við verslun og þjónustu með áherslu á fjölbreytt og aðlaðandi borgarumhverfi. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulag á lóð Lýsis við Grandaveg – Boðagrandi 9 – USK25110303.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 3. mars 2026, breytingu á deiliskipulagi á lóð Lýsis við Grandaveg vegna lóðarinnar nr. 9 við Boðagranda. Í breytingunni felst að koma fyrir tveimur færanlegum kennslustofum á einni hæð með tengibyggingu, ásamt hjólaskýli og sorplausnum á norðurhluta lóðar innan takmarkaðs byggingarreits. Gert er ráð fyrir að umframbyggingarmagn innan takmarkaðs reits megi nýta fyrir hjólaskýli, gróðurhús, geymslur og sorplausnir, enda séu slík mannvirki reist innan takmarkaðs byggingarreits og í samræmi við heildarhönnun lóðarinnar. Einnig er gerð lóðarstækkun á lóð leikskólans og lóðin afmörkuð til að stofurnar ásamt yfirbyggðu hjólaskýli komist betur fyrir norðanmegin leikskólalóðar. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 8. apríl 2026.
Brynjar Þór Jónasson.
B deild — Útgáfudagur: 9. apríl 2026