Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármálaeftirlitið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
18. október 2017
Útgáfudagur
14. nóvember 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 963/2017
18. október 2017
REGLUR
um tæknilega staðla um vörpun lánshæfismats við útreikning á eiginfjárkröfum á grundvelli staðalaðferðar og vegna verðbréfunar.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu á grundvelli staðalaðferðar í samræmi við 2. kafla, bálk II í III. hluta reglugerðar um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja, nr. 233/2017. Reglurnar gilda einnig um fjármálafyrirtæki sem reikna eiginfjárkröfur fyrir verðbréfaðar stöður í samræmi við 5. kafla, bálk II í III. hluta sömu reglugerðar.
2. gr. Vörpun lánshæfiseinkunna lánshæfismatsfyrirtækja yfir í þrep útlánagæða.
Fjármálafyrirtæki sem reiknar eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu skal varpa lánshæfiseinkunn frá lánshæfismatsfyrirtæki yfir í þrep útlánagæða samkvæmt ákvæðum reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1799 frá 7. október 2016, sbr. 3. gr. þessara reglna.
Fjármálafyrirtæki sem reiknar eiginfjárkröfur vegna verðbréfunar skal varpa lánshæfiseinkunn frá lánshæfismatsfyrirtæki yfir í þrep útlánagæða samkvæmt ákvæðum reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1801 frá 11. október 2016, sbr. 3. gr. þessara reglna.
3. gr. Birting tæknilegra staðla.
Með vísan til 2. gr. öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1799 frá 7. október 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla um vörpun lánshæfiseinkunna lánshæfismatsfyrirtækja vegna útlánaáhættu í samræmi við 1. og 3. mgr. 136. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1801 frá 11. október 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla um vörpun lánshæfiseinkunna lánshæfismatsfyrirtækja vegna verðbréfunar í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013.
Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 57/2015 um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, vísar Fjármálaeftirlitið til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1799 og 2016/1801 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):
- http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1485356873663&uri=CELEX: 32016R1799, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 275, þann 12. október 2016, bls. 3-18 og
- http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1485356873663&uri=CELEX: 32016R1801, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 275, þann 12. október 2016, bls. 27-33.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar eru settar með heimild í b-lið 3. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Fjármálaeftirlitinu, 18. október 2017.
Unnur Gunnarsdóttir.
Sigurður Freyr Jónatansson.
B deild - Útgáfud.: 14. nóvember 2017