Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seltjarnarnesbær
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Seltjarnarnes
Undirritunardagur
14. nóvember 2014
Útgáfudagur
28. nóvember 2014
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1037/2014
14. nóvember 2014
AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, fráveita, nr. 900/2012.
1. gr.
2. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:
Álagningarstofn fráveitugjalds skv. 2. gr. skal vera 0,140% af fasteignamati allra húsa og lóða skv. lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 með síðari breytingum.
Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekkert fráveitugjald.
2. gr.
Breyting þessi er gerð samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar um álagningu fráveitugjalds frá 14. nóvember 2014, reglugerð fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237/2011 og lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitu nr. 9/2009, með síðari breytingum og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum. Auglýsingin öðlast gildi 1. desember 2014.
Seltjarnarnesi, 14. nóvember 2014.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 28. nóvember 2014