Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Orkumál
Undirritunardagur
24. apríl 2026
Útgáfudagur
11. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 471/2026
24. apríl 2026
REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar (ESB) 2023/2534 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369 að því er varðar orkumerkingar þurrkara til heimilisnota og um niðurfellingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 392/2012.
1. gr.
Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 4zc í kafla IV í II. viðauka og lið 11zc í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2025, frá 5. desember 2025, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2534, frá 13. júlí 2023, um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1369 að því er varðar orkumerkingar þurrkara til heimilisnota og um niðurfellingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 392/2012.
2. gr.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2025 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 16. apríl 2026.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2534 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 432-463.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, nr. 72/1994, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 388/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 392/2012 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar þurrkara til heimilisnota.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 24. apríl 2026.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
Jón Ásgeirsson.
B deild — Útgáfudagur: 11. maí 2026