Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fiskeldi
Undirritunardagur
23. október 2023
Útgáfudagur
26. október 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1124/2023
23. október 2023
REGLUGERÐ
um (6.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/572/EB og 2007/240/EB.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 11. tl., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1471 frá 18. ágúst 2021 um breytingu og leiðréttingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235 og (ESB) 2020/2236 að því er varðar tilvísanir til landsráðstafana sem gerðar eru til að takmarka áhrif tiltekinna sjúkdóma í lagardýrum ásamt skrám yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr og vörur til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1471 sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 11/2023.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 23. október 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Iðunn María Guðjónsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 26. október 2023