Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið (2008_2012)

Málaflokkur

Landbúnaður, Sveitarfélagið Hornafjörður

Undirritunardagur

5. maí 2011

Útgáfudagur

19. maí 2011

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 504/2011

5. maí 2011

SAMÞYKKT

um breytingu á samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Hornafirði, nr. 38/2011.

1. gr.

Við 6. gr. samþykktarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eigendum sauðfjár er óheimilt að reka, sleppa eða flytja sauðfé úr Djúpavogshreppi eða stuðla að því með öðrum hætti að það gangi yfir í Sveitarfélagið Hornafjörð, nema með leyfi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Á sama hátt er sauðfjáreigendum óheimilt að reka, sleppa, flytja eða stuðla að því með öðrum hætti að sauðfé gangi úr Sveitarfélaginu Hornafirði yfir í Djúpavogshrepp án samþykkis bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

2. gr.

Samþykkt þessi, sem samþykkt er af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar við tvær umræður, staðfestist hér með skv. 5. gr. laga um búfjárhald o.fl., nr. 103/2002, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi við birtingu.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 5. maí 2011.

F. h. r.

Óskar Páll Óskarsson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. maí 2011

Tengd mál

Stjórnartíðindi