Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
23. mars 2026
Útgáfudagur
9. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 339/2026
23. mars 2026
AUGLÝSING
um staðfestingu á breytingu á skipulagsskrá fyrir Heimsþing kvenleiðtoga – Reykjavík Global Foundation, nr. 383/2023 og breytingu nr. 559/2024.
1. gr.
Samþykktar hafa verið eftirfarandi breytingar á skipulagsskrá sjóðsins:
6. gr. skipulagsskrárinnar verður svohljóðandi:
Stjórn stofnunarinnar skal skipuð sjö mönnum til 5 ára í senn. Jafnframt skulu við kjör á aðalmönnum í stjórn kosnir tveir menn í varastjórn til sama tíma. Stofnandi tilnefnir fyrstu stjórn, en eftirleiðis mun fráfarandi stjórn við lok kjörtímabils kjósa nýja stjórn
Við val stjórnarmanna skal einfaldur meirihluti stjórnar ráða. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Stjórnin stýrir öllum málefnum stofnunarinnar og kemur fram út á við fyrir hönd hennar. Stjórnin skal sjá til þess að skipulag og starfsemi hennar sé jafnan í réttu og góðu horfi. Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda stofnunina. Stjórn stofnunarinnar getur veitt umboð fyrir stofnunina. Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar sækir fund. Mikilvægar ákvarðanir má þó ekki taka án þess að allir stjórnarmenn hafi fjallað um málið, sé þess nokkur kostur. Halda skal fundargerðabók um það sem gerist á stjórnarfundum.
Stjórnarmeðlimir fá engar greiðslur fyrir setu í stjórn, en heimilt er að greiða stjórnarmeðlimum fyrir önnur störf sín og útgjöld í þágu stofnunarinnar.
2. gr.
Ofangreind breyting á skipulagsskrá fyrir Heimsþing kvenleiðtoga – Reykjavík Global Foundation staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
F.h. sýslumannsins á Vestfjörðum, 23. mars 2026.
Thelma Dögg Theodórsdóttir.
Bergrún Halldórsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 9. apríl 2026