Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Ísafjarðarbær

Undirritunardagur

29. desember 2022

Útgáfudagur

30. desember 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1602/2022

29. desember 2022

SAMÞYKKT

um breytingu á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, nr. 525/2021, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 48. gr. samþykktarinnar:

  1. 4. tl. A-liðar breytist þannig að framan við síðustu málsgrein bætist eftirfarandi:
    Velferðarnefnd fer með verkefni yfirstjórnar barnaverndarþjónustu skv. 12. gr., sbr. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, með síðari breytingum.
  2. 2. tl. B-liðar orðast svo:
    Umdæmisráð barnaverndar: Ísafjarðarbær stendur sameiginlega að umdæmisráði barnaverndar ásamt öðrum sveitarfélögum á landsbyggðinni, í samræmi við 14. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, með síðari breytingum, en bæjarstjórn skipar í ráðið skv. samningi um umdæmisráð barnaverndar.

2. gr.

Við samþykktina bætist nýr viðauki 1.1. um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Ísafjarðarbæjar, sem birtur er með samþykkt þessari.

3. gr.

Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Ísafjarðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 29. desember 2022.

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Hafdís Gísladóttir.

VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2022

Tengd mál