Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

13. janúar 2020

Útgáfudagur

29. janúar 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 55/2020

13. janúar 2020

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 481/2010 um sértæk úrræði í námi við Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðsins „fimm“ í 1. málslið 1. mgr. kemur: sex.
  2. 4. málsliður 1. mgr. breytist og orðast svo: Að auki sitja í ráðinu tveir fulltrúar tilnefndir af stúdentaráði Háskóla Íslands, og skulu þeir ekki vera af sama kyni. Miðað skal við að a.m.k. annar þeirra komi úr hópi þeirra nemenda sem falla undir 1. mgr. 1. gr. reglna þessara.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 13. janúar 2020.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 29. janúar 2020

Tengd mál