Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Forseti Íslands, Ríkisstjórn

Undirritunardagur

15. apríl 2026

Útgáfudagur

17. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 32/2026

15. apríl 2026

FORSETAÚRSKURÐUR

um breytingu á forsetaúrskurði nr. 6/2025, um skiptingu starfa ráðherra.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti og forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands er hér með gerð eftirfarandi breyting á forsetaúrskurði nr. 6/2025, um skiptingu starfa ráðherra:

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða, sbr. forsetaúrskurð nr. 24/2026, fellur brott.

2. gr.

Forsetaúrskurður þessi öðlast gildi 18. apríl 2026.

Gjört í Reykjavík, 15. apríl 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Kristrún Frostadóttir.

A deild — Útgáfudagur: 17. apríl 2026

Tengd mál