Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Umferðarmál, Lögreglumál
Undirritunardagur
17. október 2016
Útgáfudagur
31. október 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 895/2016
17. október 2016
REGLUR
um sérstakt vegaeftirlit lögreglu.
1. gr. Almennt.
Reglur þessar gilda um umferðareftirlit skv. 68. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, þ.m.t. eftirlit með aksturs- og hvíldartíma ökumanna og notkun ökurita, stærð, heildarþyngd og ásþunga ökutækja, auk hleðslu, frágangs og merkingar farms.
Verkefni lögreglu samkvæmt reglum þessum eru:
- Eftirlit með stærð og þyngd ökutækja, samkvæmt reglugerð nr. 155/2007, um stærð og þyngd ökutækja, með síðari breytingum.
- Eftirlit með hleðslu, frágangi og merkingu farms, samkvæmt reglugerð nr. 671/2008, um hleðslu, frágang og merkingu farms, með síðari breytingum.
- Eftirlit með aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit, samkvæmt reglugerð nr. 605/2010, um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit, með síðari breytingum, þ.m.t. innköllun upplýsinga úr ökuritum og eftirlit á starfsstöð flytjanda, samkvæmt 5. mgr. 68. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum.
- Eftirlit með flutningi á hættulegum farmi á landi, samkvæmt reglugerð nr. 1077/2010, um flutning á hættulegum farmi á landi, með síðari breytingum.
- Eftirlit með rekstrarleyfum í fólks- og farmflutningum, samkvæmt lögum nr. 73/2001, um fólksflutninga og farmflutninga á landi, með síðari breytingum.
- Vegaskoðanir samkvæmt reglugerð nr. 8/2009, um skoðun ökutækja, með síðari breytingum.
- Eftirlit með starfsháttum leigubifreiða samkvæmt lögum nr. 134/2001, um leigubifreiðar, með síðari breytingum.
- Annað umferðareftirlit.
2. gr. Tilgangur.
Tilgangur eftirlitsins er að framfylgja viðeigandi reglum og skulu umferðareftirlitsmenn í störfum sínum leitast við að tryggja að stærð, þyngd, hleðsla og frágangur farms á ökutækjum, auk aksturs‑ og hvíldartíma ökumanna, sé innan ramma laga og reglugerða. Markmið eftirlitsins er að stuðla að auknu umferðaröryggi, verndun vegakerfisins, jafnri samkeppnisstöðu flytjenda og góðu starfsumhverfi atvinnubifreiðastjóra.
3. gr. Ábyrgð.
Lögreglustjórarnir á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi eystra annast verkefnið. Skal það gert í samræmi við árangursstjórnunarsamning þar um sem innanríkisráðherra gerir við þá.
4. gr. Samstarf milli lögregluembætta.
Lögreglustjórarnir skulu hafa samvinnu sín á milli og samhæfa útfærslu á umferðareftirliti samkvæmt reglum þessum og umdæmaskipting milli þeirra á landsvísu vera eftirfarandi:
- Lögreglustjórinn á Suðurlandi skal vera með eftirlit í sínu umdæmi, umdæmi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum og til jafns við lögreglustjórann á Vesturlandi í umdæmi lögreglustjóranna á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum.
- Lögreglustjórinn á Vesturlandi skal vera með eftirlit í sínu umdæmi, umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum og til jafns við lögreglustjórann á Suðurlandi í umdæmi lögreglustjóranna á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum.
- Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra skal vera með eftirlit í sínu umdæmi og í umdæmum lögreglustjórans á Norðurlandi vestra og lögreglustjórans á Austurlandi.
Starfsmönnum umferðareftirlits er ekki skylt að tilkynna eftirlit í öðru lögregluumdæmi en sínu eigin til viðkomandi lögreglustjóra, enda sé slíkt eftirlit framkvæmt í samræmi 1. mgr. Umferðareftirlit skal ávallt fara fram í umboði lögreglustjóra viðkomandi umdæmis fari það fram utan þeirrar umdæmaskiptingar sem getið er um í grein þessari.
5. gr. Skráning brota.
Mál skal í upphafi skráð í málaskrá þess lögregluliðs sem vinnur málið, undir málsnúmeri þess embættis.
Í þeim tilvikum þar sem ekki er unnt að ljúka máli með greiðslu sektar á vettvangi eða sektarboði, skal senda málið til lögreglustjóra þess umdæmis þar sem brotið átti sér stað, til frekari meðferðar í samræmi við lög nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
6. gr. Einkennisfatnaður.
Umferðareftirlitsmenn lögreglu skulu, nema annað sé ákveðið af lögreglustjóra, klæðast viðeigandi einkennisfatnaði við störf sín. Um einkennisfatnað lögreglumanna fer samkvæmt reglugerð um einkennisfatnað lögreglunnar. Fatnaður annarra umferðareftirlitsmanna en lögreglumanna skal auðkenndur umferðareftirliti lögreglu þannig að ljóst sé að viðkomandi starfi við umferðareftirlit lögreglu.
7. gr. Starfsreglur.
Umferðareftirlitsmenn lögreglu skulu rækja störf sín af kostgæfni og vandvirkni. Þeir skulu gæta þess að eftirlit fari í hvívetna fram í samræmi við lög og reglur sem um það gilda. Þeir skulu ávallt gæta meðalhófs í störfum og sýna virðingu í samskiptum við þá sem eftirlit beinist að.
8. gr. Réttindi og skyldur umferðareftirlitsmanna.
Ráðningarkjör, réttindi og skyldur umferðareftirlitsmanna skulu að öðru leyti ákveðin í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 og eftir atvikum lögreglulög nr. 90/1996. Umferðareftirlitsmenn lögreglu eru bundnir þagnarskyldu um störf sín, sbr. 18. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 og 22. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
9. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 6. mgr. 68. gr. umferðarlaga nr. 50 30. mars 1987 og 7. mgr. 6. gr. lögreglulaga nr. 90 13. júní 1996, öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 17. október 2016.
F. h. r.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Þórunn J. Hafstein.
B deild - Útgáfud.: 31. október 2016