Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar, Atvinnustarfsemi, Nýsköpunarverkefni

Undirritunardagur

6. apríl 2026

Útgáfudagur

13. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 27/2026

6. apríl 2026

LÖG

um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009 (framkvæmd).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Við 2. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Við mat á fjárhagsvanda skv. 1. málsl. skal taka tillit til fjárhagsstöðu fyrirtækis sem er með meirihlutaeignarhald eða stjórnunarleg yfirráð í nýsköpunarfyrirtækinu, sé slíkt fyrirtæki til staðar.

2. gr.

6. gr. laganna fellur brott.

3. gr.

Við 7. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Samningur milli aðila um samstarfsverkefni skal liggja til grundvallar og skilað samhliða umsókn.

4. gr.

Í stað orðsins „tveggja“ í 3. mgr. 8. gr. laganna kemur: þriggja.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:

  1. Í stað orðsins „tveggja“ í 3. málsl. kemur: þriggja.
  2. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur verkefni þar sem áætlaður árlegur kostnaður er ekki umfram 125 millj. kr. fengið staðfestingu sem gildir í tvö ár. Með umsókn skal fylgja verk- og kostnaðaráætlun, sbr. 2. mgr. 4. gr., fyrir bæði árin. Skilyrði er að um lítið fyrirtæki sé að ræða, sbr. 1. tölul. 3. gr. Fyrirtæki sem fá slíka heimild skulu að loknu fyrra ári skila framvinduskýrslu á því formi sem Rannís óskar.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:

  1. Orðin „þar af skal heimilt að telja til þeirrar fjárhæðar allt að 20 hundraðshluta vegna aðkeyptrar rannsóknar- og/eða þróunarvinnu skv. 6. gr.“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
  2. 5. mgr. orðast svo:
    Kostnaður við aðkeypta þjónustu í formi rannsóknar- eða þróunarvinnu er aðeins styrkhæfur þegar þjónustan er hluti af staðfestu rannsóknar- og/eða þróunarverkefni og keypt af ótengdum fyrirtækjum, háskólum eða stofnunum á Evrópska efnahagssvæðinu eða í ríkjum sem Ísland hefur gert tvísköttunar- eða upplýsingaskiptasamning við. Heildarupphæð styrkhæfs kostnaðar nýsköpunarfyrirtækis samkvæmt þessari málsgrein getur aldrei verið umfram 20% af hámarkskostnaði skv. 1. mgr.

7. gr.

Við 16. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í reglugerð skal ráðherra enn fremur mæla nánar fyrir um mat á sérfræðimenntun, þjálfun eða reynslu starfsmanns.

8. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 6. apríl 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Daði Már Kristófersson.

A deild — Útgáfudagur: 13. apríl 2026

Tengd mál