Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Fjármálastarfsemi, Lífeyrissjóðir
Undirritunardagur
28. nóvember 2018
Útgáfudagur
13. desember 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1127/2018
28. nóvember 2018
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 916/2009, um fjárfestingarstefnu og úttekt á ávöxtun lífeyrissjóða og vörsluaðila séreignarsparnaðar.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
-
1.
mgr.
3.
gr.
orðast
svo:
Stjórn lífeyrissjóðs skal móta og kunngera fjárfestingarstefnu fyrir sjóðinn og einstakar deildir hans og ávaxta fé sjóðsins og einstakra deilda hans í samræmi við reglur og innan þeirra marka sem tilgreind eru í VII. kafla laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. - Í stað „3. gr.“ í 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 4. gr.
2. gr.
2. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „1. mgr. 36. gr.“ í 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 36. gr. a.
- Í stað „7. gr.“ í 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 8. gr.
4. gr.
Í stað orðsins „lífeyrissjóður“ í i-lið 2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar kemur: vörsluaðili.
5. gr.
10. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Fjárfestingarstefna skal dagsett og undirrituð af stjórn vörsluaðila lífeyrissparnaðar í séreign og framkvæmdastjóra.
6. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 39. gr. a laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, tekur þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. nóvember 2018.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Anna V. Ólafsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 13. desember 2018