Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Sjávarútvegur

Undirritunardagur

11. mars 2020

Útgáfudagur

12. mars 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 206/2020

11. mars 2020

AUGLÝSING

(II) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 676/2019 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Sveitarfélagið Ölfus.

Ákvæði reglugerðar nr. 676/2019 gilda um úthlutun byggðakvóta Þorlákshafnar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 35% byggðakvóta Þorlákshafnar skal skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar en 65% byggðakvótans í Þorlákshöfn skal skipt hlutfallslega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

2. gr.

Ákvæði auglýsingarinnar munu ekki leiða til skerðingar á úthlutunum sem Fiskistofa hefur þegar tekið ákvörðun um og verið tilkynnt til viðkomandi aðila.

3. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. mars 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

B deild - Útgáfud.: 12. mars 2020

Tengd mál