Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ísafjarðarbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Ísafjarðarbær

Undirritunardagur

8. október 2012

Útgáfudagur

23. október 2012

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 862/2012

8. október 2012

AUGLÝSING

um skipulagsmál á Suðureyri, Ísafjarðarbæ.

Deiliskipulag Suðureyrarmala, Suðureyri.
Á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar 21. júní 2012 var samþykkt deiliskipulag Suðureyrarmala, Suðureyri, Ísafjarðarbæ.
Skipulagssvæðið er um 5,4 ha að stærð og tekur til Suðureyrarmala og næsta nágrennis til sjávar, þ.e. Brekkustígs, Eyrargötu, Skólagötu, Stefnisgötu, hluta Aðalgötu, Freyjugötu og Hlíðavegar og Hjallavegar að norðanverðu.
Gert er ráð fyrir 33 nýjum eða endurbyggðum lóðum innan skipulagssvæðisins og möguleikum til að auka byggingarmagn á öllum lóðum innan svæðisins, nema einni sem er fullbyggð.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um.
Skipulagið öðlast þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi neðan Aðalgötu, Suðureyri.
Á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar 21. júní 2012 var samþykkt breyting á deiliskipulagi neðan Aðalgötu, Suðureyri, Ísafjarðarbæ.
Breytingin felur í sér að miðhluti skipulagsins er felldur úr skipulagi, en ysti og innsti hluti þess standa eftir óbreyttir. Breytingin er gerð í tengslum við gerð nýs deiliskipulags sem nær yfir reitinn.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um.
Skipulagið öðlast þegar gildi.

Ísafirði, 8. október 2012.

Jóhann B. Helgason,
sviðsstjóri framkvæmda- og eignasviðs.

B deild - Útgáfud.: 23. október 2012

Tengd mál

Stjórnartíðindi