Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi, Tryggingar, Vátryggingar
Undirritunardagur
25. nóvember 2021
Útgáfudagur
9. desember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1410/2021
25. nóvember 2021
REGLUR
um skilgreiningar á og samræmingu viðbótareftirlits með samþjöppun áhættu og viðskiptum innan samstæðu.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um eftirlit með samþjöppun áhættu og viðskiptum innan samstæðu samkvæmt lögum nr. 61/2017, um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.
2. gr. Eftirlit með samþjöppun áhættu og viðskiptum innan samstæðu.
Reglur þessar eru settar til að innleiða reglugerð (ESB) 2015/2303 frá 28. júlí 2015. Skal ákvæðum hennar fylgt við eftirlit með samþjöppun áhættu, sbr. 21. gr. laga nr. 61/2017, og við eftirlit með viðskiptum innan samsteypu, sbr. 22. gr. sömu laga.
3. gr. Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2303 frá 28. júlí 2015, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/87/EB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina skilgreiningarnar á og samræma viðbótareftirlitið með samþjöppun áhættu og viðskiptum innan samstæðu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 55/2021 frá 5. febrúar 2021 (óbirt). Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 60 frá 16. september 2021, bls. 16-20.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3. mgr. 32. gr. laga nr. 61/2017, um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum, og 37. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 25. nóvember 2021.
Ásgeir
Jónsson seðlabankastjóri. |
Elmar
Ásbjörnsson framkvæmdastjóri. |
B deild - Útgáfud.: 9. desember 2021