Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjavík

Undirritunardagur

6. október 2017

Útgáfudagur

20. október 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 891/2017

6. október 2017

AUGLÝSING

um nýtt deiliskipulag og breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Kjalarnes, Hof – nýtt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, þann 14. september 2017, nýtt deiliskipulag fyrir Esjuhof, spildu úr Hofslandi I við Esjurætur á Kjalarnesi. Í tillögu að deiliskipulagi er gerð grein fyrir mögulegri uppbyggingu svæðisins til framtíðar og er m.a. verið að afmarka byggingarreit, bílastæði, hestagerði og stíga. Markmiðið er að byggja upp aðstöðu til að þjóna göngu-, hesta- og hjólreiðamönnum með salernisaðstöðu, hesta- og farangursskýli auk möguleika á kaffisölu og aðstöðu fyrir starfsfólk. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið öðlast þegar gildi.

Spöngin, eining G, Spöngin 3-5/Móavegur 2 og 4.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, þann 14. september 2017, breytingu á deiliskipulagi Spangarinnar, einingar G vegna lóðanna nr. 3-5 við Spöngina og 2 og 4 við Móaveg. Í breytingunni felst m.a. fjölgun íbúða í 130 íbúðir, felld út heimild til að byggja verslunar- og þjónustuhúsnæði á lóðinni, þakgörðum efri hæða er fækkað og breidd svalaganga minnkuð, bílastæðaskilmálum er breytt, bílakjallari minnkaður, fjöldi bílastæða ofanjarðar er aukinn og fyrirkomulagi sorpgeymslna er breytt þannig að í stað djúpgáma eru hefðbundin sorpskýli á lóð. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Gylfaflöt 2 og 4.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 21. september 2017, breytingu á deiliskipulagi Gylfaflatar 2-14 vegna lóðanna nr. 2 og 4 við Gylfaflöt. Í breytingunni felst að byggingarreitir eru stækkaðir um 2 metra inn að Gylfaflöt. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Kringlumýrarbraut 100, N1.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, þann 4. október 2017, breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 100 við Kringlumýrarbraut. Í breytingunni felst m.a. að afmörkuð lóð verði fyrir smádreifistöð á landi borgarinnar við N1 bensínstöð í Fossvogi. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar, 6. október 2017.

Björn Axelsson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 20. október 2017

Tengd mál

Stjórnartíðindi