Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 30.9.–14.10.2026

2

Í vinnslu

  • 15.–28.10.2026

3

Samráði lokið

  • 29.10.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-188/2026

Birt: 30.9.2026

Fjöldi umsagna: 2

Drög að reglugerð

Atvinnuvegaráðuneytið

Vinnumarkaður og atvinnuleysi

Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 940/1999

Niðurstöður

Tvær umsagnir bárust. Reglugerðin var birt í B-deild Stjórnartíðinda 29. október 2026, sjá nr. 1146/2026, sbr. hlekk hér að neðan.

Málsefni

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til umsagnar breytingar á reglugerð nr. 940/1999 um löggiltar iðngreinar.

Nánari upplýsingar

Samtök iðnaðarins, fyrir hönd Málms, samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, hafa óskað eftir að iðngreinin kæli- og frystivélavirkjun verði löggilt. Ástæður þess eru að Tækniskólinn hefur unnið að gerð nýrrar námsbrautar í kæli og frystivélavirkjun á grundvelli styrks frá framfararsjóði Samtaka iðnaðarins vegna mikils skorts á faglærðu starfsfólki í kælitækni og ákalls frá iðnaðinum. Núverandi framsetning reglugerðarinnar, þar sem kælitækni- og frystivélavirkjun er sérgrein undir vélvirkjun, kemur í veg fyrir að námsbrautin verði opnuð.

Með fyrirhugaðri reglugerðarbreytingu er ráðuneytið að bregðast við ákalli frá atvinnulífinu vegna þarfar á starfsfólki með hæfni og fagþekkingu til að starfa á sviði kæli- og frystivélavirkjunar.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa viðskipta og markaða

atrn@atrn.is