Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 7.7.–7.8.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-118/2026

Birt: 7.7.2026

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Áform um breytingu á vændiskaupaákvæði almennra hegningarlaga

Málsefni

Fyrirhugað er að gera breytingar á 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að afnema sektir sem viðurlagategund við vændiskaupum.

Nánari upplýsingar

Frá árinu 2009 hafa kaup á vændi varðað refsingu samkvæmt almennum hegningarlögum en ekki hefur tekist að uppræta það hér á landi. Lögregla telur vændi að mestu drifið áfram af skipulagðri glæpastarfsemi og grunur er um að stór hluti þeirra kvenna sem auglýstar eru í vændi séu þolendur mansals.

Í framkvæmd varða vændiskaup sektum nema um ítrekuð brot sé að ræða og því hyggst dómsmálaráðherra endurskoða refsiramma ákvæða 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga út frá þeim tilgangi ákvæðanna að draga úr eftirspurn eftir vændi. Markmiðið er að draga úr eftirspurn eftir vændi, mansali í kynferðislegum tilgangi og skipulagðri glæpastarfsemi.

Áformaskjal og frummat á áhrifum lagasetningar fylgir málinu.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa jafnréttismála

dmr@dmr.is