Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 18.9.–2.10.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-177/2026

Birt: 18.9.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Drög að frumvarpi til breytinga á vændiskaupaákvæði almennra hegningarlaga

Málsefni

Dómsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (vændiskaup).

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að sektir verði afnumdar sem viðurlagategund vegna brota á 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga, svo að ekki verði lengur heimilt að ljúka vændiskaupabrotum með lögreglustjórasekt heldur leiði þau til útgáfu ákæru og dómsmáls. Í öðru lagi að hámarksrefsing vegna brota á 2. mgr. 206. gr., sem gerir refsivert að kaupa vændi af barni, verði hækkuð úr 2 ára fangelsi í 4 ára. Í þriðja lagi að ekki skipti máli þótt annar maður greiði eða heiti endurgjaldi fyrir vændi en sá sem það þiggur. Í fjórða lagi að saknæmisstig vegna brota gegn 2. mgr. 206. gr. verði bæði ásetningur og gáleysi að því er varðar aldur barns.

Markmiðin með framangreindum breytingum eru því að draga úr eftirspurn eftir vændi, þ. á m. barnavændi, draga úr mansali í kynferðislegum tilgangi og taka fast á skipulagðri glæpastarfsemi og kynferðisbrotum. Almenn og sérstök varnaðaráhrif refsinga verða að vera nægileg til að draga úr kerfisbundinni eftirspurn eftir vændi.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast. Þátttakendum í þessu samráðsferli er þó heimilt að óska eftir að efni umsagnar og nafn sendanda birtist ekki í gáttinni.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (2)

Umsjónaraðili

Skrifstofa jafnréttismála

dmr@dmr.is