Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 2.7.–5.8.2026

2

Í vinnslu

  • 6.8.–27.9.2026

3

Samráði lokið

  • 28.9.2026

Skjöl til samráðs

Fylgiskjöl

Mál nr. S-115/2026

Birt: 2.7.2026

Fjöldi umsagna: 2

Áform um lagasetningu

Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Áform um breytingar á lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða nr. 78/2019

Niðurstöður

Tvær jákvæðar umsagnir bárust um áformin og var horft til þeirra við undirbúning frumvarpsdraga, sem nú eru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Málsefni

Áform um breytingar á eftirlitsákvæðum laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.

Nánari upplýsingar

Lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvæga innviða taka til aðila sem hafa með höndum rekstur mikilvægra innviða samkvæmt gildissviði laganna, þar með talið aðila á skrá ráðherra yfir rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu.

Þær breytingar sem hér eru áformaðar snúa fyrst og fremst að ákvæði 11. gr. um eftirlitsstjórnvöld þar sem ráðgert er að eftirlitshlutverk sem lögin fela Umhverfis- og orkustofnun vegna orku- og hitaveitna og vatnsveitna, Samgöngustofu vegna flutninga og embætti landlæknis vegna heilbrigðisþjónustu verði falið Fjarskiptastofu. Endurskoðun á 4. gr. sem og ákvæða er varða samskipti og upplýsingagjöf kemur einnig til álita.

Innviðaráðuneytið leggur nú fram til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda fyrirætlun sína um fyrrgreindar breytingar svo hagsmunaaðilum og almenningi gefist færi á að setja fram ábendingar og athugasemdir.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (4)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála

irn@irn.is