Til umsagnar
23.9.–7.10.2026
Í vinnslu
8.10.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-181/2026
Birt: 23.9.2026
Fjöldi umsagna: 5
Drög að frumvarpi til laga
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Áformað er að flytja til Fjarskiptastofu eftirlitsverkefni frá öðrum eftirlitsstjórnvöldum. Þá verði netöryggisráð framvegis vettvangur lykilaðila um fyrirbyggjandi ráðstafanir vegna netöryggisógna.
Innviðaráðherra skipaði í júní 2025 stýrihóp með fulltrúum fjögurra ráðuneyta um endurskoðun stjórnskipulags netöryggismála. Hópnum var falið að fjalla um framkvæmd lögbundinna verkefna stjórnvalda á sviði netöryggismála og leggja mat á fyrirkomulag og verkaskiptingu á því sviði. Hann afhenti ráðherra tillögur sínar í mars 2026. Drög þessi að frumvarpi byggja á þeim.
Megintilefni frumvarpsins er að færa eftirlitsverkefni til Fjarskiptastofu, sem að gildandi lögum eru falin embætti landlæknis vegna heilbrigðisþjónustu, Samgöngustofu vegna flutningastarfsemi og Umhverfis- og orkustofnun vegna veitustarfsemi. Áfram verður náið samstarf og upplýsingaskipti milli Fjarskiptastofu og áðurnefndra stofnana. Um rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu á sviði bankastarfsemi og innviða fjármálamarkaða fer skv. lögum um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar sem Seðlabanki Íslands framfylgir og tilheyra þeir áfram þjónustuhópi netöryggissveitar. Þá verði netöryggisráð framvegis vettvangur lykilaðila sem hlutverki hafa að gegna við fyrirbyggjandi ráðstafanir vegna netöryggisógna. Skilvirk stofnanaumgjörð er til þess fallin að undirbyggja frekar óhjákvæmilega samvinnu og samhæfingu meðal ólíkra aðila á sviði netöryggismála, með almannahagsmuni að leiðarljósi. Breytingarnar falla að ákvæðum NIS2-tilskipunarinnar og má því segja að með þeim yrðu tekin skref til undirbúnings innleiðingar hennar hér á landi.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála
irn@irn.is