Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 8.–22.4.2026

2

Í vinnslu

  • 23.4.–20.5.2026

3

Samráði lokið

  • 21.5.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-69/2026

Birt: 8.4.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að reglugerð

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Breyting á reglugerð um flutning úrgangs á milli landa

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust.

Málsefni

Áformað er að taka upp stafrænt, miðlægt kerfi fyrir skipti á öllum gögnum, upplýsingum og skjölum sem varða flutning úrgangs á milli landa frá og með 21. maí nk.

Nánari upplýsingar

Tilefni breytingarinnar er ákvörðun Evrópusambandsins (ESB) um að taka upp stafrænt, miðlægt kerfi fyrir skipti á öllum gögnum, upplýsingum og skjölum sem varða flutning úrgangs á milli landa, sem birtist í reglugerð (ESB) 2024/1157 um tilflutning úrgangs og kemur í stað reglugerðar (EB) nr. 1013/2006. Er það gert til einföldunar, aukinnar skilvirkni og til að draga úr stjórnsýslubyrði og kostnaði. Frá 21. maí 2026 verður aðildarríkjum ESB skylt að notast eingöngu við stafræna kerfið vegna flutnings úrgangs á milli landa. Á það hvort tveggja við um tilkynningarskyldan flutning sem háður er samþykki yfirvalda og flutning á úrgangi til endurnýtingar sbr. svokallaða græna skrá. Allir þeir aðilar sem koma að flutningi úrgangs á milli landa, s.s. stjórnvöld, tilkynnandi sem ber ábyrgð á flutningnum, flytjandi, úrvinnsluaðili o.fl. eftir atvikum, þurfa að skrá viðeigandi upplýsingar í kerfið. Þar geta sömu aðilar jafnframt nálgast upplýsingar um þær sendingar sem þeim tengjast. Auk þess munu eftirlitsaðilar hafa aðgang að upplýsingum í kerfinu.

Um stafræna kerfið er nánar kveðið á í framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1290. Hvorki reglugerð (ESB) 2024/1157 né reglugerð (ESB) 2025/1290 hafa verið teknar upp í EES-samninginn en báðar eru gerðirnar í hefðbundnu upptökuferli. Reglugerð (EB) nr. 1013/2006 var hins vegar tekin upp í EES-samninginn árið 2008.

Hluti þess úrgangs sem til fellur á Íslandi á ári hverju er fluttur til meðhöndlunar í öðrum ríkjum Evrópu, eða með viðkomu þar, og er í því ljósi og áðurnefndrar skyldu sem tekur gildi í aðildarríkjum ESB 21. maí nk. nauðsynlegt að gera ráðstafanir sem miða að því að koma stafræna kerfinu í notkun hér á landi samtímis svo tryggt sé að íslenskir aðilar geti flutt úrgang til aðildarríkja ESB án vandkvæða.

Reglugerðin kveður á um lágmarksbreytingar á reglugerð nr. 822/2010 sem miða að því að færa öll skipti á gögnum, upplýsingum og skjölum vegna flutnings úrgangs til eða frá Íslandi úr núverandi fyrirkomulagi yfir í stafrænt, miðlægt kerfi ESB frá og með 21. maí nk. Ekki er um eiginlega innleiðingu framangreindra reglugerða ESB að ræða þar sem þær eru hafa ekki enn verið teknar upp í EES-samninginn. Íslenskir aðilar munu í flestum tilfellum tengjast kerfinu og nota það í gegnum vefgátt en Umhverfis- og orkustofnun hélt kynningarfund fyrir hagaðila um kerfið og virkni þess 25. mars sl. Tekið skal fram að í reglugerðinni er gert ráð fyrir að samskipti aðila vegna flutnings úrgangs sem hefur verið tilkynntur og tilkynningin er komin á tiltekinn stað í hefðbundnu samþykktarferli fyrir gildistöku reglugerðarinnar 21. maí nk. verði á því formi sem verið hefur til þessa og eigi ekki að færast yfir í kerfi ESB.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (16)

Umsjónaraðili

Skrifstofa umhverfisgæða

urn@urn.is