Til umsagnar
16.2.–10.3.2026
Í vinnslu
11.3.–8.7.2026
Samráði lokið
9.7.2026
Mál nr. S-44/2026
Birt: 16.2.2026
Fjöldi umsagna: 24
Drög að reglugerð
Heilbrigðisráðuneytið
Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa
Alls bárust 25 umsagnir um drög að reglugerðinni. Almennt var lýst yfir stuðningi við markmið hennar. Reglugerðin var endurskoðuð með hliðsjón af umsögnum og tekið tillit til athugasemda um m.a. geðheilbrigði, samþættingu þjónustu, tannheilsu og framkvæmd heilsufarsskoðana. Samráðsferlið styrkti efni reglugerðarinnar án þess að breyta meginmarkmiðum hennar. Reglugerðin var birt í Stjórnartíðindum 7. júlí 2026 og öðlast gildi 1. janúar 2027.
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um skólaheilsugæslu.
Með skólaheilsugæslu skal tryggja að börn og fjölskyldur þeirra njóti gagnreyndrar heilbrigðisþjónustu í formi reglubundinna heilbrigðisskoðana, heilbrigðisfræðslu, forvarna, ráðgjafar og heilsueflingar.
Markmið reglugerðarinnar er að skýra réttindi barna og hlutverk skólaheilsugæslu með þeim ávinningi að stuðla að heildstæðari þjónustu fyrir börnin, auka forvarnir, styrkja snemmtæka íhlutun, jafnt aðgengi og samfellu í þjónustu.
Við vinnu reglugerðarinnar var litið til nágrannalanda til samanburðar og þá sérstaklega til Finnlands sem hefur verið í fararbroddi Norðurlanda með skipulag og umgjörð skólaheilsugæslu og samþættingu við skólaþjónustu.
Heilbrigðisráðuneytið vinnur áfram að frekari stefnumörkun vegna skólaheilsugæslu í samráði við hagaðila. Á þessu ári verður áhersla lögð á samþætta stefnu og áætlanagerð fyrir þjónustu skólaheilsugæslu í grunnskólum og í framhaldsskólum.
Áætlað er að frekari ákvæði reglugerðarinnar verði útfærð samhliða slíkri vinnu.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa heilbrigðisþjónustu
hrn@hrn.is