Til umsagnar
29.1.–12.2.2026
Í vinnslu
13.–22.2.2026
Samráði lokið
23.2.2026
Mál nr. S-19/2026
Birt: 29.1.2026
Fjöldi umsagna: 2
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Umsagnir bárust frá tveimur aðilum. Sjá má umfjöllun um umsagnir í samráðskafla (kafla 5) í drögum að frumvarpi sem var birt í samráðsgátt 20. febrúar 2026 (mál nr. S-50/2026).
Áformað er að innleiða í landslög tilskipun Evrópusambandsins um ökutækjatryggingar.
Áformað er að innleiða í íslenskan rétt tilskipun (ESB) 2021/2118 um breytingu á tilskipun 2009/103/EB um ábyrgðartryggingu vegna notkunar vélknúinna ökutækja og um að fylgja því eftir að vátrygging vegna slíkrar ábyrgðar sé tekin með breytingum á lögum um ökutækjatryggingar, nr. 30/2019. Með innleiðingu tilskipunarinnar verður tilteknum aðila falið að hafa með höndum bótagreiðslur til tjónþola verði vátryggingafélag sem vátryggði ökutæki tekið til gjaldþrota- eða slitameðferðar vegna ógjaldfærni. Einnig eru gerðar samræmdar kröfur til tjónavottorða á EES-svæðinu, skilgreiningu á hugtakinu ökutæki er breytt o.fl.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is