Til umsagnar
20.2.–2.3.2026
Í vinnslu
3.3.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-50/2026
Birt: 20.2.2026
Fjöldi umsagna: 3
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Frumvarpinu er ætlað að innleiða í landslög tilskipun Evrópusambandsins um ökutækjatryggingar.
Áformað er að innleiða í íslenskan rétt tilskipun (ESB) 2021/2118 um breytingu á tilskipun 2009/103/EB um ábyrgðartryggingu vegna notkunar vélknúinna ökutækja og um að fylgja því eftir að vátrygging vegna slíkrar ábyrgðar sé tekin með breytingum á lögum um ökutækjatryggingar, nr. 30/2019. Með innleiðingu tilskipunarinnar verður tilteknum aðila falið að hafa með höndum bótagreiðslur til tjónþola verði vátryggingafélag sem vátryggði ökutæki tekið til gjaldþrota- eða slitameðferðar vegna ógjaldfærni. Einnig eru gerðar samræmdar kröfur til tjónavottorða á EES-svæðinu, skilgreiningu á hugtakinu ökutæki er breytt o.fl.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is