Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 4.–19.12.2025

2

Í vinnslu

  • 20.12.2025–5.2.2026

3

Samráði lokið

  • 6.2.2026

Mál nr. S-240/2025

Birt: 4.12.2025

Fjöldi umsagna: 3

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Verðbréfamiðstöðvar (T+1)

Niðurstöður

Umsagnir bárust frá þremur aðilum og var tekið tillit til þeirra við undirbúning frumvarpsdraga (sjá umfjöllun um samráð í 5. kafla þeirra), sjá mál nr. S-33/2026.

Málsefni

Áformað er að leiða í landslög reglugerð Evrópusambandsins 2025/2075, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar styttingu uppgjörstíma viðskipta með fjármálagerninga (T+1).

Nánari upplýsingar

Áformuð er lagasetning til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2025/2075, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar styttingu uppgjörstíma í Sambandinu (T+1). Gerðin verður innleidd með breytingum á lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, nr. 7/2020.

Með uppgjörstíma er átt við tímann frá degi viðskipta með fjármálagerninga (T) til afhendingar þeirra. Meginreglan er nú T+2 á Evrópska efnahagssvæðinu, en frá október 2027 verður hún T+1. Breytingunni er ætlað að styrkja samkeppnishæfni Evrópu gagnvart öðrum markaðssvæðum. Heildaráhrif styttingar eru talin verða til góðs og til þess fallin að draga úr áhættu, ekki síst mótaðila-, uppgjörs- og kerfisáhættu. Skemmri uppgjörstími getur þó einnig falið í sér áskoranir og áhættu, sem mæta þarf með viðeigandi hætti. Breytingin krefst aðlögunar ferla og uppfærslu fjármálainnviða sem við sögu koma í eftirviðskiptum, með tilheyrandi áskorunum við samhæfingu þvert á ólíka innviði og starfsemi. Umbætur á kerfum og ferlum geta orðið kostnaðarsamar, en aukin skilvirkni verður markaðnum jafnframt til hagsbóta. Fyrirhuguð lagasetning mun einkum hafa áhrif á verðbréfamiðstöðvar, útgefendur, aðrar fjármálastofnanir og rekstraraðila markaðsinnviða, fjárfesta og Seðlabanka Íslands. Óhjákvæmilegt er að undirbúa breytinguna vel og tímanlega. Seðlabankinn leiðir þá vinnu hér á landi og gerir ráð fyrir virku samstarfi við markaðsaðila og -innviði. Núverandi áætlanir gera ráð fyrir tillögugerð um gildistöku breytingarinnar á sama eða svipuðum tíma í EFTA-ríkjunum á EES-svæðinu og í ríkjum Evrópusambandsins.

Tímasetning tillögugerðar um innleiðingu gerðarinnar hér á landi mun meðal annars ráðast af framvindu ferlis upptöku hennar í EES-samninginn. Stefnt er að því að innleiða hana samhliða CSDR Refit-gerðinni, þ.e. reglugerð (ESB) 2023/2845 (með vísan í tengt mál).

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (9)

Tenging við önnur mál (2)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

fjr@fjr.is