Til umsagnar
6.2.–1.3.2026
Í vinnslu
2.–16.3.2026
Samráði lokið
17.3.2026
Mál nr. S-33/2026
Birt: 6.2.2026
Fjöldi umsagna: 3
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar efnislegar breytingartillögur komu fram eða athugasemdir um upptöku og innleiðingu EES-gerðanna sem um ræðir. Vegna tafa á upptöku gerðanna í EES-samninginn liggur nú fyrir að ekki verður af framlagningu frumvarpsins fyrr en á haustþingi 2026. Ekki er gert ráð fyrir veigamiklum breytingum á frumvarpinu.
Áformað er að leiða í landslög tvær Evrópugerðir um breytingar á reglugerð (CSDR) sem innleidd var hér á landi með lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga.
CSDR mælir fyrir um samræmdar kröfur fyrir uppgjör viðskipta með fjármálagerninga og reglur um skipulagningu og háttsemi verðbréfamiðstöðva til að stuðla að öruggu, skilvirku og snurðulausu uppgjöri. Hún var innleidd hér á landi með tilvísunaraðferð, sbr. lög um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, nr. 7/2020.
Breytingagerðirnar, sem nú stendur til að lögfesta samhliða, eru frá 2023 (CSDR Refit) og 2025 (CSDR T+1). Með Refit taka ýmis efnisatriði CSDR breytingum, í ljósi fenginnar reynslu af framkvæmd upphaflegrar móðurgerðar. Markmið breytinganna er að stuðla að einföldun og aukinni skilvirkni, auk þess að undirbúa styttingu uppgjörstíma. Þegar á heildina er litið er ekki búist við að álag á verðbréfamiðstöðvar eða eftirlitsaðila breytist í meginatriðum eða aukist varanlega við lögfestingu CSDR Refit hér á landi. Með gerðinni frá 2025 var ákveðið að stytta uppgjörstíma viðskipta með fjármálagerninga. Meginreglan er nú T+2 á Evrópska efnahagssvæðinu, en frá október 2027 verður hún T+1. Þessi breyting krefst tímanlegs undirbúnings og samhæfingar þvert á markaðinn. Upptaka gerðanna er áformuð í EES-samninginn í mars 2026.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is