Til umsagnar
4.–19.12.2025
Í vinnslu
20.12.2025–5.2.2026
Samráði lokið
6.2.2026
Mál nr. S-239/2025
Birt: 4.12.2025
Fjöldi umsagna: 3
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Umsagnir bárust frá þremur aðilum og var tekið tillit til þeirra við undirbúning frumvarpsdraga (sjá umfjöllun um samráð í 5. kafla þeirra), sjá mál nr. S-33/2026.
Áformað er að leiða í landslög reglugerð Evrópusambandsins 2023/2845, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 um verðbréfamiðstöðvar.
Áformuð er lagasetning til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2023/2845, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar aga í uppgjöri, veitingu þjónustu yfir landamæri, eftirlitssamstarf, veitingu viðbótarbankaþjónustu og kröfur fyrir verðbréfamiðstöðvar þriðja lands og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 236/2012 (CSDR Refit). Gerðin verður innleidd með breytingum á lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, nr. 7/2020.
Breytingar með CSDR Refit varða meðal annars ráðstafanir til að takast á við uppgjörsbresti, lágmarkstíðni reglulegrar eftirlitsframkvæmdar, samstarf landsbundinna eftirlitsaðila, upplýsingamiðlun og mat vegna breytinga á eignarhaldi í verðbréfamiðstöðvum. Fyrirhuguð lagasetning mun fyrst og fremst hafa áhrif á verðbréfamiðstöðvar og eftirlitsaðila. Núverandi áætlanir gera ráð fyrir tillögugerð um gildistöku breytinganna á árinu 2026.
Stefnt er að því að innleiða samhliða CSDR Refit-gerðinni aðra og nýlegri breytingu á CSDR, þ.e. reglugerð (ESB) um styttingu uppgjörstíma í T+1 (með vísan í tengt mál).
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is