Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 8.11.–6.12.2024

2

Í vinnslu

  • 7.12.2024–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-224/2024

Birt: 8.11.2024

Fjöldi umsagna: 23

Drög að frumvarpi til laga

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Háskólastig

Breyting á gjaldtökuheimildum opinberra háskóla

Málsefni

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi sem veitir opinberum háskólum lagaheimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES svæðisins.

Nánari upplýsingar

Tilefni og markmið breytinganna er að nýta opinber fjárframlög til háskóla betur og efla háskólastigið á Íslandi. Fjöldi erlendra umsókna í háskóla á Íslandi hefur stóraukist undanfarin ár en í Háskóla Íslands fjölgaði erlendum umsóknum úr 1472 fyrir síðasta skólaár, í 2285 fyrir núverandi skólaár. Þar af voru tæplega 2000 umsóknir frá nemendum utan EES-svæðisins. Sambærileg þróun hefur átt sér stað hjá hinum háskólunum hérlendis.

Ísland er í dag eina Norðurlandaþjóðin sem ekki innheimtir skólagjöld af nemendum utan EES-svæðisins. Mikilvægt er að opinberir háskólar hér á landi gangi í takt við hin Norðurlöndin og alþjóðaþróun á sviði háskólamála. Með tilkomu skólagjalda skv. frumvarpinu er fundin ný leið til þess að standa undir kostnaði við menntun nemenda utan EES-svæðisins og getur innleiðing skólagjalda leitt til þess að íslenskir háskólar verði eftirsóknarverðari kostur fyrir efnilega nemendur þar sem aukin samkeppnishæfni háskólanna í alþjóðlegum samanburði sem og bætt fjármögnun gerir þeim kleift að auka gæði og umfang námsins. Gjaldtakan mun svara að hámarki áætluðum kostnaði vegna kennslu, rannsókna og annarra verkefna, sbr. 1. mgr. 24. gr.

Samhliða breytingunum verða gerðar breytingar á gildissviði reglna, nr. 755/2024, um fjárframlög til háskóla, á þann veg að reglurnar taki almennt ekki til nemenda utan EES-svæðisins. Í því felst að loknar einingar og brautskráningar nemenda utan EES-svæðisins verða ekki taldar með í útreikningum á fjárframlögum hins opinbera til háskóla samkvæmt reglum nr. 755/2024. Þessu fylgir ekki niðurskurður heldur verður sama fjármagni dreift á færri nemendur skólanna, þ.e. einungis nemendur innan EES-svæðisins. Gildistaka er fyrirhuguð 1. júlí 2025.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (9)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðasamskipta

hvin@hvin.is