Til umsagnar
24.9.–8.10.2024
Í vinnslu
9.10.–27.11.2024
Samráði lokið
28.11.2024
Mál nr. S-188/2024
Birt: 24.9.2024
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Ein umsögn barst um áformin, frá Landvernd. Laut hún að því tekið var undir að færa nýrri stofnun nauðsynlegar samræmdar heimildir. Leggi félagið áherslu allt það sem ný stofnun muni hafa af verkefnum varði náttúruna sjálfa og verndun hennar. Mikilvægt sé að viðhafa vandað samráð við hagaðila til að styrkja sjálfstæðan rétt náttúrunnar og efla samræmt eftirlit, styrkja landvörslu, bæta regluverk og veita stofnuninni nauðsynlegar heimildir til að taka á málum sem kunna koma upp á verksviði hennar.
Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um lagasetningu til að samræma reglur um leyfisveitingar, gjaldtöku, eftirlit o.fl. sem ný Náttúruverndarstofnun mun fara með.
Í júní 2024 samþykkti Alþingi frumvarp til laga um Náttúruverndarstofnun, sbr. lög nr. 111/2024, þar sem annars vegar Vatnajökulsþjóðgarður og hins vegar náttúruverndarsvið Umhverfisstofnunar renna saman í eina stofnun frá 1. janúar 2025. Allt frá því að vinna hófst við að undirbúa sameiningu stofnana ráðuneytisins hefur legið fyrir að nauðsynlegt sé að gera breytingar á tilteknum lagaákvæðum, annars vegar laga nr. 60/2013 um náttúruvernd og hins vegar laga nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð til að samræma eins og hægt er þau ákvæði sem gilda um gjaldtöku, leyfisveitingar, málsmeðferð, þvingunarúrræði og eftirlits og heyrir undir hina nýju stofnun. Frumvarpið er því eðlilegt framhald af þeirri vinnu. Áform þessi eru opin til samráðs til 8. október næstkomandi.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa framkvæmda og eftirfylgni
urn@urn.is