Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 10.7.–3.9.2024

2

Í vinnslu

  • 4.9.2024–29.1.2026

3

Samráði lokið

  • 30.1.2026

Mál nr. S-144/2024

Birt: 10.7.2024

Fjöldi umsagna: 4

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Innleiðing Evrópugerða um verðbréfafyrirtæki

Niðurstöður

Fjórar umsagnir bárust. Fjallað er um þær og viðbrögð við þeim í 5. kafla greinargerðar með drögum að frumvarpi sem birt voru í samráðsgáttinni 29. janúar 2026 (mál nr. S-20/2026).

Málsefni

Áformað er að innleiða tvær Evrópugerðir um verðbréfafyrirtæki.

Nánari upplýsingar

Evrópugerðirnar eru reglugerð (ESB) 2019/2033, um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja, og tilskipun (ESB) 2019/2034, um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum. Með þeim er regluverk Evrópusambandsins um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum í megindráttum skilið frá reglum um varfærniseftirlit með bönkum og öðrum lánastofnunum. Aðskilnaðinum er ætlað að gera regluverkinu kleift að taka betur mið af sérstöðu hvorrar tegundar fyrirtækja fyrir sig. Líklega verður lagt til að gerðirnar verði innleiddar með nýjum lögum um verðbréfafyrirtæki.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (29)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

gunnlaugur.helgason@fjr.is