Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 26.1.–12.2.2024

2

Í vinnslu

  • 13.2.–31.10.2024

3

Samráði lokið

  • 1.11.2024

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-16/2024

Birt: 26.1.2024

Fjöldi umsagna: 1

Áform um lagasetningu

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Vinnumarkaður og atvinnuleysi

Áform um breytingar á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi (meðalhófsprófun við lögverndun nýrra starfa)

Niðurstöður

Drög að frumvarpi kynnt í Samráðsgátt Stjórnvalda 10. maí 2024.

Málsefni

Áformað er að innleiða tilskipun (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun við lögverndun nýrra starfa með breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

Nánari upplýsingar

Tilskipun (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun við lögverndun nýrra starfa kveður á um rýni sem viðhöfð skal þegar EES-ríki telja koma til álita að lögvernda ný störf eða þegar gildandi regluverk er endurskoðað.

Mælt er fyrir um meðalhófskönnun sem beita verði þegar fram koma tillögur um nýjar lögverndaðar starfsgreinar eða ef ráðist er í endurskoðun eldri krafna. Skal þá rýna skilyrðin fyrir aðgengi að störfum og hvort gætt sé meðalhófs við ákvarðanir þar um, þær miðist við eðli starfs og hvort litið sé til almannahagsmuna. Þá er mikilvægt að kröfur gangi ekki lengra en þörf er á og séu til þess fallnar að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Enn fremur að athugað sé hvort ná megi sömu markmiðum með öðrum aðgerðum.

Innleiðing gerðarinnar fer fram með breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, nr. 26/2010. Þá er áformað að setja reglugerðarheimild svo tryggja megi að rýni í samræmi við tilskipunina fari fram, svo sem með leiðbeiningum á innri vef Stjórnarráðsins um verklag við vinnslu stjórnarfrumvarpa í þeim tilvikum sem þau fela í sér tillögu um lögverndun starfa sem ekki hafa notið lögverndunar fyrr.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðamála

hvin@hvin.is