Til umsagnar
10.–31.5.2024
Í vinnslu
1.6.–31.10.2024
Samráði lokið
1.11.2024
Mál nr. S-99/2024
Birt: 10.5.2024
Fjöldi umsagna: 2
Drög að frumvarpi til laga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Vinnumarkaður og atvinnuleysi
Það bárust tvær umsagnir. Samtök iðnaðarins árétta að innleiðing tilskipunarinnar gefi ekki tilefni til endurskoðunar á reglum er varða löggiltar iðngreinar og benda á að endurskoðun á löggildingu iðngreina komi ekki til greina án samráðs við greinarnar sjálfar. Í umsögn Viðskiptaráðs er innleiðingu á tilskipuninni fagnað, enda sé hún liður í því að auka samkeppnishæfni og sveigjanleika íslensks atvinnulífs og draga úr hindrunum í regluverki. Umsagnirnar eru ekki þess eðlis að þær leiði til efnislegra breytinga á frumvarpinu.
Kveðið er á um framkvæmd meðalhófsprófunar á tillögum til breytinga á lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum um lögverndun starfs. Með breytingunni er tilskipun (ESB) 2018/958 innleidd í íslenskan rétt.
Með frumvarpsdrögunum eru leitast við að uppfylla skyldur íslenska ríkisins til innleiðingar á tilskipun (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun áður en samþykkt er ný lögverndun starfsgreina. Markmið tilskipunarinnar er að koma í veg fyrir ótilhlýðilegar takmarkanir á aðgangi að eða stundun atvinnustarfsemi og tryggja eðlilega starfsemi innri markaðarins.
Samkvæmt frumvarpsdrögunum skulu stjórnvöld framkvæma meðalhófsprófun þegar ákvæðum laga eða stjórnvaldsfyrirmæla, sem takmarka aðgang að lögverndaðri starfsgrein eða iðkun hennar, er breytt eða ný ákvæði eru sett. Í fyrsta lagi skulu slík ákvæði rökstudd með vísan til almannahagsmuna og í öðru lagi skulu ákvæðin vera til þess fallin að ná því markmiði sem stefnt er að og ekki ganga lengra en nauðsynlegt er til að ná því markmiði.
Ábyrgðin á að framkvæma meðalhófsprófun er í höndum hlutaðeigandi ráðherra hverju sinni. Skrá þarf rökstuðning fyrir því að ákvæði séu metin í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar, þau séu rökstudd sem réttlætanleg og að meðalhófs sé gætt í gagnagrunn ESB yfir lögverndaðar starfsgreinar. Þá er einnig mælt fyrir um heimild ráðherra til að setja reglugerð um meðalhófsprófun, upplýsingaskipti milli aðildarríkja, kröfur um skráningu í gagnagrunn og öðrum framkvæmdaatriðum tilskipunar um meðalhófsprófun.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðasamskipta
hvin@hvin.is