Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 12.12.2023–9.1.2024

2

Í vinnslu

  • 10.1.–6.3.2024

3

Samráði lokið

  • 7.3.2024

Mál nr. S-259/2023

Birt: 12.12.2023

Fjöldi umsagna: 1

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Ýmsar lagfæringar á löggjöf á fjármálamarkaði

Niðurstöður

Umsögn barst frá Samtökum fjármálafyrirtækja. Greint er frá umsögninni og viðbrögðum við henni í samráðskafla í greinargerð með drögum að frumvarpi sem birt var sem mál S-71/2024 í samráðsgáttinni.

Málsefni

Áformað er að leggja til minni háttar breytingar á ýmsum lögum á fjármálamarkaði, meðal annars til að unnt verði að leiða í íslenskan rétt efni Evrópugerða sem hafa verið teknar upp í EES-samninginn.

Nánari upplýsingar

Áformað er að leggja til breytingar á þrettán lagabálkum á sviði fjármálamarkaðar. Áformaðar breytingar snúa meðal annars að því að lagfæra tilvísanir, fella brott úrelt ákvæði, treysta lagastoð fyrir innleiðingu Evrópugerða sem eru teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og samræma hugtakanotkun.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (34)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

gunnlaugur.helgason@fjr.is