Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 7.–19.3.2024

2

Í vinnslu

  • 20.3.–2.4.2024

3

Samráði lokið

  • 3.4.2024

Mál nr. S-71/2024

Birt: 7.3.2024

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Ýmsar lagfæringar á löggjöf á fjármálamarkaði

Niðurstöður

Umsögn barst frá Samtökum fjármálafyrirtækja. Fjallað er um efni umsagnarinnar og viðbrögð við henni í samráðskafla í greinargerð með frumvarpi sem var lagt fram á Alþingi 27. mars 2024.

Málsefni

Lagðar eru til ýmsar lagfæringar á ákvæðum í sextán lagabálkum á fjármálamarkaði.

Nánari upplýsingar

Meiri hluti þeirra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpinu snýr að því að leiðrétta vísanir milli ákvæða, skýra hugtök og samræma hugtakanotkun og fella brott úrelt ákvæði og að heimildum til að innleiða með stjórnvaldsfyrirmælum reglugerðir sem útfæra nánar ákvæði Evrópugerða sem hafa verið innleiddar með lögum. Helstu efnislegu breytingar sem eru lagðar til eru að heildsöluinnlán geti talist til innstæðna í skilningi laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, og þar með notið stöðu innstæðna við skilameðferð fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020; að ekki verði áskilið að hver viðskipti við stjórnarmann eða framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækis og maka, börn og foreldra þeirra og fyrirtæki sem þeir hafa tiltekin tengsl við fari fyrir stjórn og séu tilkynnt Fjármálaeftirlitinu, heldur nægi að stjórn setji reglur um viðskipti við stjórnarmenn, framkvæmdastjóra og tengda aðila, varðveiti gögn um þau og geri þau aðgengileg Fjármálaeftirlitinu óski það eftir því og tryggi að viðskipti við starfsmenn og aðila í nánum tengslum við þá lúti sömu reglum og viðskipti við almenna viðskiptamenn í sambærilegum viðskiptum; að skerpt verði á ákvæðum um samstarf Fjármálaeftirlitsins við erlend yfirvöld; að felld verði brott ákvæði um viðbrögð Fjármálaeftirlitsins við brotum fjármálafyrirtækis á einum stað í lögunum því tekið er á sama atriði annars staðar í lögunum; að lánastofnunum verði skylt að upplýsa Fjármálaeftirlitið að eigin frumkvæði um breytingar á nánum tengslum sínum við aðra aðila; og að heimildum til að leggja til fjárframlög úr skilasjóði.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (93)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

gunnlaugur.helgason@fjr.is