Til umsagnar
31.10.–14.11.2023
Í vinnslu
15.11.2023–3.9.2024
Samráði lokið
4.9.2024
Mál nr. S-214/2023
Birt: 31.10.2023
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar umsagnir bárust. Drög að frumvarpi voru birt til umsagnar í máli S-25/2024.
Áformuð er lagasetning um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni, innleiðing reglugerðar (ESB) 2022/858 hér á landi. Umgjörð til reynslu, á sérhæfðu sviði.
Birt eru til umsagnar áform um lagasetningu til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2022/858 um tilraunaregluverk vegna innviða markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni. Fyrirhugað er frumvarp til nýrra heildarlaga, ásamt tillögum að breytingum á gildandi lögum um markaði fyrir fjármálagerninga (nr. 115/2023) og verðbréfamiðstöðvar o.fl. (nr. 7/2020) í samræmi við ákvæði gerðarinnar.
Dreifð færsluskrártækni (e. distributed ledger technology, DLT) hefur verið talin geta hentað fyrir allt sem þarfnast talningar, skráningar og bókunar, t.d. í því skyni að einfalda viðskipta- og uppgjörsferli verðbréfaviðskipta. Um hana er ítarlega fjallað í skýrslu starfshóps á vegum forsætisráðuneytis, Tækifæri og áhættur á sviði stafrænnar fjármálaþjónustu sem byggist á dreifðri færsluskrá (apríl 2023).
Með DLT-reglugerð (ESB) 2022/858 er komið á fót tilraunaumgjörð á sérhæfðu sviði fjármálaþjónustu, þ.e. viðskipta með DLT-fjármálagerninga og uppgjörs slíkra viðskipta. DLT-reglugerðinni er ætlaður takmarkaður gildistími, að hámarki sex ár. Draga á lærdóm af framkvæmd hennar í því skyni að móta Evrópulöggjöf á þessu sviði til lengri framtíðar. Með hugtakinu DLT-fjármálagerningur er átt við fjármálagerning sem uppfyllir nánar tilgreind skilyrði og gefinn er út, skráður, fluttur og varðveittur á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni. Í DLT-reglugerðinni er kveðið á um kröfur til starfrækslu svonefndra DLT-markaðsinnviða.
DLT-reglugerðin tilheyrir stafrænum fjármálapakka ESB sem ætlað er að stuðla að því að umgjörð fjármálamarkaða mæti þörfum og kröfum nútímans. Með innleiðingu hennar verður starfandi fjármálastofnunum kleift að kanna nýtingarmöguleika og að innleiða nýja tækni í starfsemi sinni, kjósi þær svo, auk þess sem hún opnar nýjum aðilum leið inn á sérhæfðan innviðamarkað á nýjum forsendum.
Áformað er að fela Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands eftirlit með framkvæmd fyrirhugaðra laga, að veita leyfi/undanþágur samkvæmt DLT-reglugerðinni hér á landi og, ef við á, afturkalla umrædd leyfi/undanþágur.
DLT-reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2023, en gildistöku hennar var frestað um 12 mánuði í EFTA ríkjunum innan EES.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is