Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 31.1.–15.2.2024

2

Í vinnslu

  • 16.2.–8.8.2024

3

Samráði lokið

  • 9.8.2024

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-25/2024

Birt: 31.1.2024

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Frumvarp til laga um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust.

Málsefni

Með frumvarpinu verði innleidd hér á landi reglugerð (ESB) 2022/858, um sértæk leyfi til nýtingar dreifðrar færsluskrártækni á markaði fyrir fjármálagerninga (e. DLT Pilot Regime Regulation).

Nánari upplýsingar

Óskað er eftir umsögnum um drög að frumvarpi til nýrra sérlaga og um breytingar á ýmsum lögum. Innleidd verði hér á landi með tilvísunaraðferð reglugerð (ESB) 2022/858 frá 30. maí 2022 um tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni og um breytingar á reglugerðum (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) nr. 909/2014 og á tilskipun 2014/65/ESB (hér eftir DFT-reglugerðin eða DFTR).

DFTR gildir um fjármálaþjónustu, nánar tiltekið viðskipti með fjármálagerninga á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni (DFT, e. distributed ledger technology eða DLT) og uppgjör slíkra viðskipta. Með henni er komið á sameiginlegu tilraunaskipulagi vegna innviða sem byggjast á umræddri tækni, svonefndra DFT-markaðsinnviða (þ.e. DFT-markaðstorg fjármálagerninga, DFT-uppgjörskerfi og DFT-viðskipta- og uppgjörskerfi).

DFT hefur verið talin geta hentað fyrir allt sem þarfnast talningar, skráningar og bókunar, jafnvel í því skyni að einfalda eða sameina viðskipti (e. trading) og eftirviðskipti (e. post-trading), sem til þessa hafa verið aðskildar tegundir fjármálaþjónustu. Því er gjarnan haldið á lofti að DFT þyki örugg og notkun hennar stuðli að gagnsæi.

Gert er ráð fyrir að aðilar, hvort heldur þeir sem fyrir eru á markaði (verðbréfafyrirtæki, rekstraraðilar markaða og verðbréfamiðstöðvar) eða nýir, þurfi sértækt leyfi yfirvalda til að reka DFT-markaðsinnviði. Með DFTR eru kröfur þegar gildandi tilskipunar og reglugerða til markaða fyrir fjármálagerninga og um uppgjör viðskipta með fjármálagerninga (MiFID II, MiFIR og CSDR) aðlagaðar sérstöku eðli áskorana/tækifæra tengdum framþróun tækni og nýtingarmöguleikum. Markmið DFTR eru þó ekki síður að vernda fjárfesta, fjármálastöðugleika og heilleika markaðarins.

Frumvarpið mun fela í sér nýmæli og veita innlendum aðilum sömu tækifæri og öðrum á Evrópska efnahagssvæðinu, til nýbreytni og framþróunar á sviði viðskipta með DFT-fjármálagerninga og uppgjörs slíkra viðskipta. Umsagnarfrestur er tvær vikur.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

fjr@fjr.is