Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 25.8.–20.9.2023

2

Í vinnslu

  • 21.2023–2.9.2024

3

Samráði lokið

  • 3.9.2024

Skjöl til samráðs

Fylgiskjöl

Mál nr. S-154/2023

Birt: 25.8.2023

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (umfjöllun Persónuverndar)

Niðurstöður

Umsagnarfresti lauk 20. september 2023. Þrjár umsagnir bárust um frumvarpið. Töluverð breyting var gerð á frumvarpinu í tilefni af þeim og því talið rétt að setja frumvarpið aftur í samráð. Uppfærð drög að frumvarpi voru birt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 17. nóvember 2023 (mál nr. S-235/2023) og var hagsmunaaðilum gert viðvart þar um. Umsagnarfresti lauk 2. desember.

Málsefni

Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingu á lögum nr. 44/2014 um vísindarannsóknir.

Nánari upplýsingar

Um er að ræða tillögu sem felur í sér breytingu á 13. gr. laganna. Umrætt ákvæði fjallar um umfjöllun Persónuverndar á vísindarannsóknum á heilbrigðissviði en samkvæmt ákvæðinu skulu vísindasiðanefnd og siðanefndir heilbrigðisrannsókna senda Persónuvernd yfirlit yfir umsóknir um leyfi til vísindarannsókna. Að fengnu yfirliti ákveður Persónuvernd hvort hún taki málið til frekari meðferðar. Til þess að unnt sé að senda eingöngu tilteknar tegundir rannsókna til umfjöllunar Persónuverndar og þar með einfalda umsóknarferlið er nauðsynlegt að breyta framangreindu ákvæði. Lagt er til að ráðherra sé skylt að setja reglugerð um umsóknir sem senda skal Persónuvernd til umfjöllunar. Að öðru leyti vísast til umfjöllunar í áformunum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa heilsueflingar og vísinda

hrn@hrn.is