Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Stefna í fjarheilbrigðisþjónustu – skýrsla starfshóps

1. júlí 2026

Starfshópur á vegum heilbrigðisráðherra hefur skilað skýrslu með tillögum að stefnu í fjarheilbrigðisþjónustu. Markmiðið er öruggt og notendavænt aðgengi að þjónustunni, samþætt hefðbundinni heilbrigðisþjónustu og styrkt af skýrri umgjörð um gæði, gagnaskráningu og fjármögnun.

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta stefnu í fjarheilbrigðisþjónustu hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Framtíðarsýnin er að notendur heilbrigðisþjónustu á Íslandi hafi öruggt, skilvirkt og notendavænt aðgengi að fjarheilbrigðisþjónustu sem er samþætt hefðbundinni þjónustu, styður heilsu og sjálfstæði fólks og nýtir tækni á ábyrgan hátt.

„Það er mikil gróska í þróun og innleiðingu nýrra lausna á þessu sviði og mikil tækifæri til framtíðar. Við uppbyggingu fjarheilbrigðisþjónustu þarf að vanda til verka þannig að gæði og öryggi séu tryggð. Til þess þarf skýra stefnu, sem er ekki síst mikilvæg fyrir starfsemi Stafrænnar heilsu,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Gert er ráð fyrir að fjarheilbrigðisþjónusta lúti sömu reglum og kröfum um öryggi og gæði og önnur heilbrigðisþjónusta, og að samningar séu forsenda fyrir greiðsluþátttöku hins opinbera.

Skýrslan fjallar um þrjár grunnforsendur fyrir uppbyggingu þjónustunnar.

Gæði og öryggi

Fjarheilbrigðisþjónusta á að uppfylla sömu klínísku gæðastaðla og staðbundin þjónusta. Lagt er til að skilgreina gæðavísa hjá veitendum auk miðlægra gæðavísa. Jafnræði og aðgengi eru í forgrunni svo þjónustan skapi virði fyrir notendur, veitendur og samfélagið.

Gagnaskráning og tæknileg samræming

Skráning á að fylgja gildandi lögum um trúnað, öryggi og persónuvernd, og styðja samfellda þjónustu, faglega ákvarðanatöku og rekjanleika.

Fjármögnun

Fjármögnun er grunnforsenda þess að fjarheilbrigðisþjónusta verði raunhæfur hluti kerfisins. Lagt er til að skilgreina fjármagn til stofnunar, innleiðingar og reksturs, auk innviða eins og nettenginga um allt land. Markmiðið er einnig að draga úr kostnaði notenda, svo sem ferðakostnaði og vinnutapi.

Skýrslan sjálf er aðgengileg hér: Stefna um fjarheilbrigðisþjónustu - skýrsla

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu