Stafræn heilsa tekur til starfa
2. janúar 2026
Ný miðstöð þróunar og nýsköpunar fyrir heilbrigðisþjónustu hefur nú tekið til starfa.

Í dag 2. janúar 2026 tók til starfa Stafræn heilsa, þróunar- og þjónustumiðstöð.
Um er að ræða nýja einingu sem heyrir undir Heilbrigðisráðuneytið og heyrir undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra.
Hlutverk Stafrænnar heilsu er að samhæfa öll stafræn verkefni í heilbrigðisþjónustu, tryggja yfirsýn og einnig að styðja við nýsköpun og þar með aðkomu nýsköpunarsamfélagsins. Verkefni sem tengjast nýsköpun innan heilbrigðiskerfisins munu færast yfir til Stafrænnar heilsu frá fjölda heilbrigðisstofnana sem og mannauður.
Fyrstu verkefnin lúta t.d. að innviðum sjúkraskráa, upplýsingaöryggi, stöðlum, nýsköpun o.fl.
Til að byrja með munu verkefnin lúta að innviðum sjúkraskráa, upplýsingaöryggi, stöðlum og nýsköpun.
Forstöðumaður Stafrænnar heilsu er Sigurður Þórarinsson, skipaður af heilbrigðisráðherra 2. desember 2025.
