Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Stafræn heilsa: Ný miðlæg eining til að efla nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

2. október 2025

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra kynnti í gær, á fyrstu nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytisins og ráðuneytis nýsköpunarmála, ákvörðun um að sett verði á fót ný miðlæg þróunar- og þjónustumiðstöð fyrir allt heilbrigðiskerfið undir heitinu Stafræn heilsa.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra kynnti í gær, á fyrstu nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytisins og ráðuneytis nýsköpunarmála, ákvörðun um að sett verði á fót ný miðlæg þróunar- og þjónustumiðstöð fyrir allt heilbrigðiskerfið undir heitinu Stafræn heilsa. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni, styðja við nýsköpun, þar með aðkomu einkaaðila og tryggja yfirsýn. Samhliða verður ráðist í styrkingu stjórnkerfis og stýringar stafrænnar heilbrigðisþjónustu.

Stafræn heilsa mun meðal annars taka við verkefnum sem áður voru hjá Landspítala, embætti landlæknis, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilbrigðisþjónustu, heilbrigðisráðuneytinu og fleiri aðilum. Verið er að skilgreina hvaða verkefni flytjast til einingarinnar en til að byrja með verða það; nýsköpun, staðlar, upplýsingaöryggi og innviðir sjúkraskráa. Verkefni Stafrænnar heilsu verður einnig að taka saman og forgangsraða þeim áskorunum sem brýnastar eru til að mæta þörfum sjúklinga og þjónustu við þá og koma þeim á framfæri við nýsköpunarsamfélagið.

Stafræn heilsa tekur til starfa í byrjun næsta árs og er liður í markvissri eflingu innviða og skýrari stýringar á stafrænum lausnum í heilbrigðiskerfinu. Verkefnið byggir meðal annars á niðurstöðum ítarlegrar greiningar á stöðu stafrænna lausna í heilbrigðisþjónustu á Íslandi sem heilbrigðisráðuneytið réðist í á þessu ári í samvinnu við fjölmarga aðila, stofnanir og aðra haghafa. Niðurstöður þeirrar greiningar voru birtar í september síðastliðnum þar sem settar eru fram tillögur sem miða að skýrari forgangsröðun og samfellu í þjónustu, auknu aðgengi að gögnum og sameiginlegum innviðum sem tryggja skilvirkan og öruggan rekstur. Greiningunni og tillögum sem á henni eru byggðar er ætlað að vera vegvísir að stefnu til framtíðar.

Styrkari umgjörð og stjórnun stafrænnar heilbrigðisþjónustu

Hluti af þeim breytingum sem framundan eru felast í því að styrkja stjórnkerfi og stýringu stafrænnar heilbrigðisþjónustu. Settur verður á fót stefnumótandi hópur innan heilbrigðisráðuneytisins og undir hann settir hópar sem fjalla um fjóra meginstrauma stafrænna verkefna. Þetta eru:

  • Klínískur faghópur

  • Faghópur um upplýsingaöryggi og áhættustýringu

  • Tæknifagráð

  • Faghópur um gögn og gæði.

Hugmyndafræðin og markmiðin að baki þessa skipulags miða að því að tryggja skýra gagnastjórnun og aðskilnað gagna frá kerfum til að tryggja sveigjanleika og framtíðaröryggi. Verið er að meta notkun nýs gagnastaðals (OpenEHR) í þessu skyni. Fyrr á árinu var lokið við að skilgreina FHIR staðalinn fyrir gagnaskipti en þessir staðlar munu einfalda samþættingar við nýjar lausnir.

Öryggisflokkun heilbrigðisgagna fyrir skýjalausnir

Ein meginforsenda stafrænnar þróunar í heilbrigðiskerfinu er að fyrir liggi skýr skilgreining á öryggisflokkun heilbrigðisgagna. Fyrir nokkrum misserum var skilgreind af hálfu hins opinbera öryggisflokkun gagna í stjórnsýslu ríkisins. Nokkur óvissa hefur verið um þetta hvað heilbrigðisgögn varðar. Stýrihópur um stafrænar lausnir sem starfað hefur á vegum heilbrigðisráðuneytisins lagði vinnu í að skoða þetta og hefur heilbrigðisráðuneytið á grundvelli hennar tekið ákvörðun um flokkun heilbrigðisgagna, annars vegar sem „varin gögn“ eða í skilgreindum tilvikum sem „sérvarin gögn“. Í báðum tilvikum er skýrt að heilbrigðisgögn má vista í skýi og verður nýja einingin; Stafræn heilsa ráðgefandi hvað þetta varðar.

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu