Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Rafræn skráning í sjúkraflutningum

3. apríl 2026

Innleiðing á rafrænni skráningu í sjúkraflutningum er nú í fullum gangi.

Mikilvæg tækninýjung í sjúkraflutningum er nú langt komin í innleiðingu um allt land, þar sem stafræn skráning leysir nú af hólmi eldri tækni, pappírsskráningu. Sjúkraflutningamenn nota nú sérhannað spjaldtölvuforrit til að skrá niður lífsmörk og meðferð sjúklinga á leið til sjúkrastofnana. Þróun þessarar lausnar á sér langan aðdraganda og var unnin í nánu samráði við notendur hennar, sjúkraflutningsmenn, til að einfalda störf þeirra með sem bestum hætti.

Þessi stafræna þróun gerir sjúkraflutningamönnum einnig kleift að skrá upplýsingar um ástand, lyfjagjöf, meðhöndlun o.fl. með skjótum og skilvirkum hætti.

Helstu kostir stafrænnar skráningar eru t.d. lágmörkun mannlegra mistaka, gæði gagna og aukið upplýsingaflæði til sjúkrastofnana sem geta verið enn betur undirbúnar við móttöku sjúklinga áður en þeir koma á áfangastað. Þó að innleiðing sé langt komin er þróun á forritinu sjálfu hvergi nærri lokið; haldið verður áfram að bæta við eiginleikum og sjálfvirkni með þann tilgang að auka samþættingu milli kerfa enn frekar auk áframhaldandi ítrunar skv. þeirri endurgjöf sem notendur sjálfir gefa.

„Þetta snýst ekki aðeins um að leggja pappírinn til hliðar og spara þannig tíma heldur að búa til samtengd kerfi sem byggja undir gagnadrifna ákvörðunartöku sem skiptir miklu máli í nútímalegri heilbrigðisþjónustu,“ segir Ólafur K. Ragnarssonsem sem þróaði hina nýju lausn. Ólafur, sem er tölvunarfræðingur hjá Stafrænni heilsu, þekkir vel þær áskoranir sem þurfti að leysa, enda fyrrum sjúkraflutningamaður með 24 ára reynslu hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins bs.

Verkefnið markar fyrsta stóra áfangann í starfsemi Stafrænnar heilsu, en miðstöðinni, sem tilheyrir heilbrigðisráðuneytinu, er ætlað að vera hornsteinn í uppbyggingu samræmdra tæknilausna í heilbrigðisþjónustu. Stafræn heilsa tók til starfa í upphafi árs og mun tengja saman alla anga heilbrigðiskerfisins með nútímalegum sameiginlegum innviðum sem nýtast bæði starfsfólki og sjúklingum.

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu