Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Morgunfundur Stafrænnar heilsu á Iceland Innovation Week

28. apríl 2026

Morgunfundur Stafrænnar heilsu á Iceland Innovation Week var haldinn í dag í stóra sal Grósku. Við þökkum öllum sem mættu og spjölluðu við okkur að fundi loknum. Við erum spennt fyrir framhaldinu og áframhaldandi samtölum.

Morgunfundur Stafrænnar heilsu á Iceland Innovation Week var haldinn í dag í stóra sal Grósku. Við þökkum öllum sem mættu og spjölluðu við okkur að fundi loknum. Við erum spennt fyrir framhaldinu og áframhaldandi samtölum.

Yfirskrift fundarins var „Ný nálgun, ný tækifæri“ og dagskráin var þétt enda verkefnið ærið.

Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður Stafrænnar heilsu, reið á vaðið með skýr skilaboð: almenningur og heilbrigðisstarfsfólk á að upplifa kerfið sem eina samfellda heild — og þar skiptir samstarf við stofnanir og nýsköpunarsamfélagið sköpum. Það verður verkefni Stafrænnar heilsu.

Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, sagði frá Minni heilsu á Ísland.is, spennandi verkefni þar sem heilbrigðisþjónusta og upplýsingar verða sameinaðar á einn stað, enn eitt skrefið í því að gera sem mest af þjónustu hins opinbera aðgengilega á einum stað, á vef og í appi.

Hluti af starfsfólki Stafrænnar heilsu kom svo, eitt af öðru og sagði frá sínum verkefnum og áherslum:

Jóhannes Stefánsson fjallaði um vinnu við skýrar leikreglur um öryggi og gæði stafrænna lausna í heilbrigðisþjónustu.

Sverrir Sigmundarson kynnti þróunarferlið hjá Stafrænni heilsu, sem miðar að betri gæðum, auknum fyrirsjáanleika og hraðari framþróun.

Helga Margrét Clark sagði frá stöðu og framtíð fjarheilbrigðisþjónustu, þar sem uppfærð stefna og endurskoðað regluverk eru á lokametrunum.

Ólafur Kristján Ragnarsson sagði frá rafrænum skráningum í sjúkraflutningum, þar sem innleiðing nýrrar lausnar er langt komin um allt land og leysir blað og penna af hólmi.

Sunna Brá Stefánsdóttir kynnti miðlægt lyfjakort, sem veitir betri yfirsýn og eykur öryggi við ávísun og afgreiðslu lyfja.

Gunnar Thorarensen, svæfinga- og gjörgæslulæknir, lokaði fundinum með framtíðarsýn sinni: Tækifærin eru til staðar, en ávinningurinn kemur aðeins í ljós þegar Stafræn heilsa, nýsköpunarsamfélagið og heilbrigðisstarfsfólk sameina krafta sína og nýta tæknina til þess að skapa heilbrigðiskerfi framtíðarinnar.

Fundarstjóri var Guðmundur Jóhannsson hjá Stafrænni heilsu og Stafrænu Íslandi og var fundi slitið á slaginu 10:30.

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu