Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Miðlægt lyfjakort, betri yfirsýn sem eykur öryggi

18. maí 2026

Innleiðing á miðlægu lyfjakorti er langt komin um land allt. Yfir 95% heilbrigðisstofnana og einkarekinna þjónustuaðila eru nú þegar komin með miðlæga lyfjakortið en stefnt er að því að ljúka innleiðingunni á þessu ári.

Í grunninn er miðlægt lyfjakort samansafn upplýsinga um lyf, lyfjasögu og afgreiðslusögu notenda, ásamt gögnum frá Lyfjastofnun og Sjúkratryggingum Íslands. Heilbrigðisstarfsfólk sér þannig sömu upplýsingar á einum stað, hvort sem skjólstæðingur leitar á heilsugæslu, sjúkrahús eða t.d. einkarekna læknastofu.

Aukið öryggi

Aukið öryggi er stærsti ávinningurinn. Þegar allt starfsfólk hefur aðgang að sömu upplýsingunum myndast skýr heildarmynd um stöðu hvers og eins skjólstæðings þegar kemur að lyfjum almennt og ávísunum þeirra. Þannig má t.d. koma í veg fyrir misskilning, mannleg mistök, tvöfaldar ávísanir lyfja eða misnotkun á lyfjum. Þannig færir miðlæga lyfjakortið einfaldari yfirsýn, öruggari meðferð og betri stuðning við klínískar ákvarðanir.

„Þetta er stórkostlegt framfaraskref. Að upplýsingar um lyfjanotkun einstaklinga flytjist örugglega og hindrunarlaust milli þjónustuveitenda felur í sér stóraukið öryggi fyrir sjúklinga. Allir sem sinna viðkomandi sjúklingi hafa þannig sömu upplýsingar og yfirsýn yfir lyfjasögu hans og innan skamms verður þeim einnig kleift að miðla upplýsingum sín á milli um lyfjameðferð sjúklingsins, svo sem um auka- og milliverkanir. Þetta er gríðarlega mikið öryggis- og gæðamál“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Næstu skref

Næsta varða í þessari vegferð er að innleiða miðlæga lyfjakortið í apótekum landsins. Það verður bylting fyrir lyfjafræðinga, sem fá þá sömu yfirsýn og læknar, og verður miðlæga lyfjakortið þannig mikilvægt tæki til að fækka ávísunum og afgreiðslu lyfja sem geta valdið ávana enn frekar.

Einnig verður farið í þá vinnu að samþætta lyfjafyrirmælakerfi Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri þannig að hægt verði að flytja ákveðnar upplýsingar á milli miðlæga lyfjakortsins og lyfjafyrirmælakerfsins, sem bætir öryggi og tryggir samfellu í þjónustu.

Að auki er verið að þróa skilaboðavirkni milli lyfjafræðinga og lækna, tengingar við heilsufarsupplýsingar þannig að mikilvægar upplýsingar úr lyfjakortinu fylgi sjúklingi milli landa sem og að auka aðgengi nýsköpunarfyrirtækja að undirliggjandi kerfum svo hægt sé að byggja nýja og spennandi virkni á móti þeirra tæknilausnum inn í lyfjakortið.

Nýjar lausnir og betri þjónusta

Miðlægt lyfjakort er hluti af stærri vegferð, að gera heilbrigðisupplýsingar aðgengilegar á réttum stað, á réttum tíma, fyrir rétt fólk. Þegar grunnurinn er kominn opnast tækifæri fyrir frekari tengingar, betri þjónustu og nýjar lausnir sem auka bæði öryggi og skilvirkni.

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu