Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Málþing um stafræna þróun í heilbrigðisþjónustu

13. apríl 2026

Stafræn heilsa tók þátt í vel heppnuðu málþingi um stafræna þróun og framtíð heilbrigðisþjónustu.

Þann 25. mars sl. hélt Spítalinn okkar, landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala, vel heppnað og afar vel sótt málþing í Grósku.

Yfirskrift málþingsins var Framtíðin er stafræn: Hvernig styrkir tækni nýjan Landspítala og heilbrigðiskerfið?

Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður Stafrænnar heilsu, hóf dagskrána og fjallaði um hlutverk og framtíðarsýn Stafrænnar heilsu. Arnar Þór Guðjónsson, yfirlæknir háls-, nef- og eyrnalækninga á Landspítala, sagði frá nýjustu tækni og vísindum frá sjónarhóli lækna.

Ólafur M. Birgisson, sviðstjóri framkvæmdasviðs NLSH, fór yfir stöðu framkvæmda við Nýjan Landspítala ásamt öðrum tengdum verkefnum. Að lokum kynnti Ásgeir Margeirsson, formaður stýrihóps um þróun uppbyggingar Landspítala, helstu uppbyggingarverkefni og næstu skref.

Að erindum loknum fóru fram pallborðsumræður þar sem fyrirlesarar svöruðu spurningum fundargesta. Umræður voru líflegar og veittu góða innsýn í stöðu og framtíð heilbrigðisþjónustu.

Stafræn heilsa þakkar Spítalanum okkar kærlega fyrir boðið og vel skipulagðan og gagnlegan viðburð.

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu