Kynningarfundur vegna fyrirhugaðs rammasamningsútboðs Stafrænnar heilsu
24. júní 2026
Stafræn heilsa boðar, í samstarfi við Fjársýslu ríkisins til kynningarfundar vegna fyrirhugaðs rammasamningsútboðs.

Kynningarfundurinn er vegna fyrirhugaðs rammasamningsútboðs á sérfræðingum í hugbúnaðarþróun, rekstri og ráðgjöf. Á fundinum förum við yfir hæfiskröfur, hlutverk innan samningsins, mat á tilboðum og fyrirkomulag kaupa, þar á meðal bein kaup og örútboð. Fundurinn fer fram á Teams 30. júní 2026 kl. 9:00 til 10:00. Þátttakendur geta sent inn athugasemdir og tillögur til úrbóta meðan á fundi stendur og til kl. 12:00 samdægurs. Spurningar og svör verða birt nafnlaust og send öllum þátttakendum.
Skráning og nánari upplýsingar má finna á vef Fjársýslunnar.
